Tuesday, October 23, 2007
Sunday, October 14, 2007
Friday, October 05, 2007
Wednesday, October 03, 2007
Hvaða lag minnir þig á Kvennó?
Er eitthvað lag eða lög sem minna þig alltaf á Kvennó?
Mér detta nokkur í hug...
Around the World - Daft Punk - Var í stöðugri spilun í kjallaradiskóinu á Ibiza og við fórum reglulega þangað að dansa róbótadans við lagið hehehe.
Sabotage - Beasty Boys - Grimmileg hopprokkdanstækni hvar sem þetta lag var spilað. Dettur mörg önnur lög í viðbót í hug með Skepnustrákunum sem vekja upp góðar minningar;)
Pulp Fiction - Diskurinn eins og hann leggur sig..."All right, everybody be cool, this is a robbery! Any of you fucking pricks move, and I'll execute every motherfucking last one of ya! ....dömm dadda da da da da dömmm da da da
Reservoir Dogs - Aftur diskurinn eins og hann leggur sig þó að "Stuck in the Middle with you" og "Lime in the Coconut" og auðvitað "Little Green Bag"
Bundin fastur við þig - Páll Óskar - Gúgglaði þetta til að vera viss um að lagið héti þetta og datt beint inn á SadóMasó síðu...merkilegt!
Ready or not - Fugees ...one time two time
Snoop Dooooogy Dooooovoooff voff voooog
Breathe - Prodigy....langt síðan ég hef hlustað á það...best að skella því á fóninn
Maður er bara dottin í nostalgíu dauðans!
Hvaða lag fílaðir þú??????

Tuesday, October 02, 2007
Kennara hittingur
Sæl Öll
Þar sem ég hef ekki fengið neinar undirtektir varðandi heimsókn í Kvennó þá ætla ég að skrifa smá mail á kennarana og bjóða þeim að koma á REX svo vonandi hefur einhver þeirra áhuga að mæta og hitta okkur. Við verðum bara að gera þetta með stæl í 15 ára útskriftinni hjá okkur og hafa hana í maí og mæta í útskriftina hjá þeim árgangi
Hitti ykkur annars hress og kát á REX þann 6. okt kl 20
Kveðja Hildur P

Tuesday, September 25, 2007
Halló halló halló!

Bara að tékka...
Fékkst þú sent bréf heim?
Ætlar þú að koma?
Er einhver með þér í bekk að skipuleggja bekkjarpartý?
Ertu búin/n að rifja upp minningar með myndaalbúminu þínu?
Ef þú ætlar að koma, commentaðu og segðu "ég kem!!!"
Ef þú ert að skipuleggja bekkjarpartý, segðu okkur líka frá :)
Ps. það eru nokkur bréf sem ég fékk send til baka:
Jens
Eiríkur og Edda (er í útlöndum)
Rakel
Linda (er í útlöndum)
Dísella (er í útlöndum, er er hún að koma í okt??)
...svo getur verið að það hafi verið einhver nöfn í viðbót, tékka betur í kvöld
Eru þeir sem eru í kontakt við þau láta þau vita?
Thursday, September 20, 2007
Kvennó ferð
Sæl Öll
Ingibjörg skólastýra hringdi í mig í dag og tjáði mér það að okkur væri guð velkomið að koma á laugardaginn og hún myndi taka á móti okkur. Þá myndum við hafa möguleika á að ganga um skólann. Varðandi að hitta kennara þá segir hún að þar sem þetta er frídagur kennarana þá er ekkert víst þeir vilji koma en hún er tilbúin að láta þá vita hvenær við verðum þarna og þeir sem vilja koma geta komið s.s kennara.
Annað kom upp líka að við gætum hitt kennarana eftir kennslu á föstudag og eru þeir búnir í vinnu kl 15.30 en þá eru flest okkar í skóla eða vinnu svo ég veit ekki hversu sniðugt það væri. Allavegana þá vil ég spyrja ykkur hvað þið viljið gera
Fara á laugardaginn kl 15 eða 16 og ganga um skólann og svona og spjalla við Ingibjörgu
eða
hitta kennara á föstudaginn fyrir þá sem komast frá vinnu eða skóla
eða
sleppa þessu núna og gera þetta með stæl þegar við verðum 15 ára stúdent og fara þá í útskriftina og fl.
látið mig vita hvað þið viljið
Kveðja, Hildur P.